World Class Smáralind er 2.000 fm2 og var opnuð 24. október 2016.
Tækjasalurinn er vel búinn upphitunartækjum, lyftingatækjum og lausum lóðum. Í stöðinni eru upphitunartæki: hlaupabretti, skíðavélar, stigvélar og hjól. Öll tækin í tækjasalnum eru frá Life Fitness og Hammer Strength sem eru taldir vönduðustu framleiðendur á sínu sviði í heiminum í dag. Í salnum er pallur fyrir ólympískar lyftingar. Boðið er upp á þjónustu þjálfara í tækjasal viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Korthafar hafa aðgang að öllum opnum tímum skv. tímatöfluen svo eru einnig lokuð námskeið í boði sem og einkaþjálfun.
ATH. Milli kl. 06-07:30 er aðeins hægt að komast inn í húsið við inngang D (2. hæð, við hliðina á Debenhams)
Stöðin inniheldur;
- Spinningsal
Það eru fáar hreyfiaðferðir sem brenna jafn miklu og spinning. Spinning í World Class er byggt upp á skorpuþjálfun sem er frábær leið til þess að byggja upp aukið þol á skömmum tíma og brenna fullt af hitaeiningum. Kennt er Spinning og Quick Spinning
- Hot Yoga sal
Upphitaður salur helst í 37°C. Kennt er: Foam Flex, Hot Butt, Hot Fit, Hot Yoga, Hot Yoga Teygjur, Kviður og bak & Hot Vinyasa Yoga
- Hóptímasal
Fjöldi hóptíma er í boði í Smáralind: Buttlift, Tabata, Vaxtarmótun, Zumba og þeir sem eru taldir upp hér fyrir ofan.
- Dansstúdíó World Class
Dansstúdíóið býður upp á dans fyrir krakka á öllum aldri.
- Barnahorn
Aðgangur að barnahorni er viðskiptavinum World Class í boði þeim að kostnaðarlausu. Barnahornið er einungis ætlað fyrir eldri börn sem mögulegt er að skilja eftir ein án eftirlits í skamman tíma.
- Gufur og pottar
Í stöðinni er infarauð sauna, hefðbundin sauna og eimbað ásamt tveimur heitum pottum.
Korthafar hafa aðgang að öllum 12 stöðvum World Class ásamt aðgangi að 6 sundlaugum (Árbæjarlaug, Laugardalslaug, Seltjarnarneslaug, Lágafellslaug, Sundhöll Selfoss & Breiðholtslaug).