World Class Selfossi er 700 fm2 og var opnuð 2. janúar 2016.
Afgreiðsla og búningsaðstaða er í sama inngangi og í Sundhöll Selfoss. Gott aðgengi í laugina. Tækjasalurinn er vel búinn upphitunartækjum, lyftingatækjum og lausum lóðum. Í stöðinni eru upphitunartæki: hlaupabretti, skíðavélar, stigvélar og hjól. Öll tækin í tækjasalnum eru frá Life Fitness og Hammer Strength sem eru taldir vönduðustu framleiðendur á sínu sviði í heiminum í dag. Boðið er upp á þjónustu þjálfara í tækjasal viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Korthafar hafa aðgang að öllum opnum tímum skv. tímatöflu en svo eru einnig lokuð námskeið í boði sem og einkaþjálfun.
Stöðin inniheldur;
- Spinningsal
Það eru fáar hreyfiaðferðir sem brenna jafn miklu og spinning. Spinning í World Class er byggt upp á skorpuþjálfun sem er frábær leið til þess að byggja upp aukið þol á skömmum tíma og brenna fullt af hitaeiningum. Kennt er Spinning.
- Hot Yoga sal
Upphitaður salur helst í 37°C. Kennt er Body fit, Foam Flex, Hot Yoga, Jóga & Mix pilates
- Hóptímasal
Fjöldi hóptíma er í boði á Selfossi: Ketilbjöllur, Pump Fx, Tabata, Styrktarþjálfun, Stöðvarþjálfun & Zumba
Korthafar hafa aðgang að öllum 12 stöðvum World Class ásamt aðgangi að 6 sundlaugum (Árbæjarlaug, Laugardalslaug, Seltjarnarneslaug, Lágafellslaug, Sundhöll Selfoss & Breiðholtslaug).



