World Class Mosfellsbæ er 700 fm2 og var opnuð 15. desember 2007.
Tækjasalurinn er vel búinn upphitunartækjum, lyftingatækjum og lausum lóðum. Í stöðinni eru upphitunartæki: hlaupabretti, skíðavélar, stigvélar og hjól. Öll tækin í tækjasalnum eru frá Life Fitness og Hammer Strength sem eru taldir vönduðustu framleiðendur á sínu sviði í heiminum í dag. Boðið er upp á þjónustu þjálfara í tækjasal viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Korthafar hafa aðgang að öllum opnum tímum skv. tímatöflu en svo eru einnig lokuð námskeið í boði sem og einkaþjálfun.
Stöðin inniheldur;
- Spinningsal
Það eru fáar hreyfiaðferðir sem brenna jafn miklu og spinning. Spinning í World Class er byggt upp á skorpuþjálfun sem er frábær leið til þess að byggja upp aukið þol á skömmum tíma og brenna fullt af hitaeiningum. Kennt er Spinning.
- Hóptímasal
Fjöldi hóptíma er í boði í Mosfellsbæ: Body fit, Buttlift, Fight Fx, Jóga, Karlaþrek, Morgunþrek, Mosóskokk, Step og styrkur, Þol og styrkur, Vaxtarmótun & Zumba
- Dansstúdíó World Class
Dansstúdíóið býður upp á dans krakka á öllum aldri.
Korthafar hafa aðgang að öllum 12 stöðvum World Class ásamt aðgangi að 6 sundlaugum (Árbæjarlaug, Laugardalslaug, Seltjarnarneslaug, Lágafellslaug, Sundhöll Selfoss & Breiðholtslaug).



