World Class Breiðholti er 2.000 fm2 og var opnuð 31. október 2016.
Afgreiðsla er við sama inngang og Breiðholtslaug. Tækjasalurinn er vel búinn upphitunartækjum, lyftingatækjum og lausum lóðum. Í stöðinni eru upphitunartæki: hlaupabretti, skíðavélar, stigvélar og hjól. Öll tækin í tækjasalnum eru frá Life Fitness og Hammer Strength sem eru taldir vönduðustu framleiðendur á sínu sviði í heiminum í dag. Boðið er upp á þjónustu þjálfara í tækjasal viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Korthafar hafa aðgang að öllum opnum tímum skv. tímatöflu en svo eru einnig lokuð námskeið í boði sem og einkaþjálfun.
Stöðin inniheldur;
- Spinningsal
Það eru fáar hreyfiaðferðir sem brenna jafn miklu og spinning. Spinning í World Class er byggt upp á skorpuþjálfun sem er frábær leið til þess að byggja upp aukið þol á skömmum tíma og brenna fullt af hitaeiningum. Kennt er Spinning og Quick spinning.
- Hot Yoga sal
Upphitaður salur helst í 37°C. Kennt er Hot Yoga, Foam Flex, Hot Butt & Hot Fit
- 4 hóptímasali
Fjöldi hóptíma er í boði í Breiðholti: Buttlift, Hámark, Styrktarþjálfun 50+, Styrkur, Tabata & Zumba og þeir sem eru taldir upp hér fyrir ofan.
Pramasalurinn er nýjung á Íslandi. Prama er sérútbúinn snerpu, þol og styrktarsalur sem má lesa nánar um hér.
- Dansstúdíó World Class
Dansstúdíóið býður upp á dans krakka á öllum aldri.
- Barnagæsla
Barnagæslan er björt og rúmgóð og tekur vel á móti börnunum.
- Sauna er í búningsklefum
Korthafar hafa aðgang að öllum 12 stöðvum World Class ásamt aðgangi að 6 sundlaugum (Árbæjarlaug, Laugardalslaug, Seltjarnarneslaug, Lágafellslaug, Sundhöll Selfoss & Breiðholtslaug).



